5.6.2008 | 23:09
Dagur í lífi.............
Ţađ er alveg furđulegt hvađ smá kría/siesta/morfar gerir manni.
Sko; vikan er bara búin ađ sökka í vinnunni. Kaffivélin er búin ađ vera í ólagi í TVĆR vikur og viđ búin ađ gera kaffi upp á gamla mátan, sem er bara tímafrekt. Svo ţegar ég kvellsprakk á viđgerđarţjónustunni ţá var loksins gert viđ maskínuna. Ég er međ 200 durga sem ég ţarf ađ fóđra á hverjum degi og ţeir drekka meira kaffi en fullhlađin Júmbóţota notar af bensíni í flugtaki. Svo eru ţađ veikindi og önnur skemmtilegheit sem hafa puntađ upp á vikuna hjá mér í blessuđu vinnunni minni. Í morgun hafđi staffiđ mitt á orđi hversu ţreytulegur ég vćri. ( nó wonder) Ég var í ferlega slćmu skapi í vinnunni og allir átu eins og berserkir. Var međ ofnbakađar laksakótelettur međ spínati og sultuđum rauđlauk, smjörsósu og splúnkunýjum litlum kartöflum.
Skapiđ batnađi ađeins ţegar kom á daginn ađ allir voru í skýjunum yfir matnum, og svo var afleysingakokkurinn ađeins betri í dag en í gćr. Ég keyrđi svo hćgt heim(80 110 km/klst) Ađeins ađ slaka á. Sólin skein og hitinn geggjađur. Stoppađi svo rétt áđur en ég kom heim, á brautarstöđinni í Lejre, labbađi berfćttur út og keypti flotta ísa fyrir konuna, mig og Sólina. SVO LAGĐI ÉG MIG á sófan og ćtlađi aađeeins ađ bloggazzzz . Ég svaf í heilan tíma međ fartölvuna á maganum og hef ábyggilega hrotiđ hátt! Eftir tvo lútsterka exprezzo kom ég mér í vinnufötin og dröslađi mér út í garđ og fór ađ taka til, slá grasiđ, vökva allt og rađa upp trjádrumbunum sem ég fékk hjá nágrannanum í síđustu viku. Ţetta eru gömlu grenitrén sem voru felld og fékk ég nokkra risastóra drumba sem ég ćtla svo ađ saga niđur í stóla. Svona eins og í Ástríksbókunum. (40-60 cm í rúmmál) Ég tók mér pásur til ađ skođa mig um og dáđst ađ náttúrunni, bíflugunum mínum, fuglunum og veđrinu sem er međ ólíkindum gott.
Kom svo inn um hálf tólf leytiđ og fór ađ blogga!!! Ekkert ţreyttur og í ferlega góđu skapi. Garđurinn er glćsilegur og hugurinn heima. Fékk mér kaldar kjötbollur og ketchup og drakk smá koníak međ. Alveg yndislegt og er vo ađ lurkast upp í bćli til kellu minna sem hrýtur vođalega varlega og í réttum tóntegundum og ef ég ţekki mig rétt ţá á ég eftir ađ velgja konunni minni undir uggunum ţegar ég byrja á minni óratóríu í Hes-moll eftir undirritađan. Góđa nótt og ég ćtla svo ađ klára greinina um matreiđslukeppnina á morgun í lestinni.
Gunni Palli kokkur.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Ég skal hrjóta bakraddir...og ef ég fć konuna međ í karpiđ, ţá kaffćrum viđ hvađ sem er...
Haraldur Davíđsson, 6.6.2008 kl. 04:01
Já og mundu ad ćfa thig á Hes-moll röddinni.
Gunnar Páll Gunnarsson, 6.6.2008 kl. 05:59
Góđ fćrsla hjá ţér kćri vinur...ţú verđur ađ passa ađ keyra ţig ekki út..
Guđni Már Henningsson, 6.6.2008 kl. 09:27
Alltaf gott ađ lesa ţig! Ég var lent í garđinum hjá ţér áđur en ég vissi af......
Eigđu góđan dag Gunni Palli kokkur
Hrönn Sigurđardóttir, 6.6.2008 kl. 11:27
ţú ert nú meiri kallinn minn, hrotuhrúturinn vćni !
knús í krús
steina
Steinunn Helga Sigurđardóttir, 6.6.2008 kl. 16:20
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.