Kílóin fjúka út í veður og vind.

Þá er fyrsta vikan í megrunarátaki Gunna Palla; að baki og eins og sjá má á myndunum, þá fjúka kílóin út í veður og vind. Fyrri myndin var tekin nákvæmlega fyrir vikuFoto 734

 

 

 

 

 

 

 

og sú seinni fyrir nákvæmlega tveim mínútum.Foto 735

 

 

 

 

 

 

 

Magamálið er ekki lengur 107cm heldur  komið í 101cm. Baðvigtin er týnd og tröllum gefin svo að þaðan er ekki hægt að sækja vitnisburðinn. Ég læt því myndirnar tala sínu máli enda eru þær vitnisburður um mikla staðfestu. Ekkert borðað á milli mála, smakkið er mælt í teskeiðum og mataræðið er orðið mennskt. Gunni Palli kokkur hleypur nú annan hvern dag svona 1,5 km rétt fyrir háttinn og skreiðist svo alveg "laf" uppí til sinnar heittelskuðu og sofnar um leið og haus nemur kodda með sælubros á vör. Sú heittelskaða er ekki eins rauðeygð á morgnana eftir næturvöku vegna hrotuleika hans. Þar sem hann er hættur að spila hátt og lætur sé nægja að spila pp en ekki fff eins og áður fyrr. Þetta er allt á réttri leið og bráðum verð ég eins og Legolas í Hringadróttins sögu. Hár og fallegur, grannur og fljótur að hlaupa. Léttur í lundu og allt það.

Bless að sinni og ég kem með aðra skýrslu eftir viku. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég var alveg við það að reka á eftir þér með færslu! En þar sem ég er afar þekkt fyrir þolinmæði ákvað ég að doka.......

Hrönn Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Greinilega búin ad finna einu sønnu lausnina

Guðrún Þorleifs, 5.8.2008 kl. 06:21

3 Smámynd: Dísa Dóra

  Greinilega algjör kraftaverkakúr - maður ætti kannski að prófa

Dísa Dóra, 5.8.2008 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband